Eitt sinn 4.A, ávalt 4.A
Hvernig hefur sumarið farið í ykkur? Eruð þið öll orðin brún og sæt eftir sólina í heitu löndunum eða rauð og temmilega frekknótt eftir sólina á Íslandi ;) ? Ég held að ég falli í seinni hópinn, þó svo að mér hafi tekist að endurvekja brúnkuna sem ég fékk í La Rochelle í apríl...
Ég ætlaði samt fyrst og fremst með þessu skriferíi mínu að spurja ykkur hvað þið ætlið að gera á komandi vetri? Ég veit að einhverjir voru búnir að fá inn í HÍ og margir búnir að pæla í að skreppa til útlanda. Ég vona líka bara að það tékki allir á þessari síðu ennþá, því það voru ekki margir sem kommentuðu á færsluna hennar Kötu (kannski ekki margir sem hafa viljað setja þessar upplýsingar á netið)...
Ég held að margir viti af því nú þegar, en til að byrja umræðuna þá er hér áætlunin okkar Ingu: Við erum búnar að bóka flug til London 21. október og ætlum að dvelja þar í viku áður en við höldum í átt til Manchester þar sem við ætlum að dvelja í rúma tvo mánuði. Svo ætlar Snæfríður að vera með okkur frá 25. október - 5. nóvember og við ætlum að skoða Stonehenge, Oxford og húsin í kringum Derby (þar sem mikið af Jane Austin myndunum voru teknar upp). Eftir að Snæfríður er farin ætlum við Inga að reyna að finna okkur vinnu, svona rétt til að draga úr ferðakostnaðinum. Svo einhverntíman í janúar liggur leið okkar líklegast til Frakklands þar sem við munum líklegast endurtaka leikinn. Svo verðum við eitthvað á ferðinni held ég, Bretland er það eina sem er alveg bókað. Áætluð heimkoma er um miðjan ágúst á næsta ári, en það gæti breyst.
Ég vil endilega heyra hvað þið ætlið að gera, hverjir ætla að halda út í heim og hverjir verða heima!
Emil og Skundi
Hæ allir A-ingar, mig langar rosalega að biðja ykkur ef þið fallist á það að senda mér og bara öllum í bekknum e-mailin ykkar þar sem að það er ekki langt í að ma póstföngunum okkar lokar, eða svo skilst manni.
Mér þætti skemmtilegt að vita af einhverjum stað sem hægt væri að hafa samband ef manni dytti nú eitthvað í hug.
Eða jafnvel bara setja þau inn á þetta ofur aktíva bloggið okkar (bara muna að segja hjá í stað "@" til varnar spaminu, en þið vitið það auðvitað) ;)
Aðal emillinn minn er: kata.kai "hjá" gmail.com
Ég vona að þið látið þetta berast á milli því ég er ekki viss hve margir skoða þennan póst hér eftir... já eða þessa síðu
kv. Kata
P.S. Til hamingju allir með brautskráninguna, alveg frábær dagur að baki og nú er bara að hlakka til næsta árs og allra hittinga sem kunna að verða. Húrra fyrir okkur, ekki satt! :)
Carwash
Ég fékk mjög svo skemmtilegan póst frá vinkonu minni í Þýskalandi, og þar sem við eigum að heita málabraut þá er ég ekkert að þýða þetta fyrir ykkur ;-)
"Ich melde mich in der letzten Zeit nicht mehr so oft, denn ich habe den totalen Stress! Fast jeden Tag muss ich mit meinem Auto zu der neuen Waschanlage. Mein Gott, wie schnell doch so ein Auto wieder schmutzig ist!
Und ständig haben sie hier und da noch etwas vergessen, mal den Kotflügel, mal die Stoßstange, mal einen Radkasten ...
Ach ja, und trotzdem sind sie dort sehr freundlich! Ein Foto lege ich bei.
Liebe Grüße
Britta ;-)"
http://i17.photobucket.com/albums/b71/ragnasteins/carwash.jpg
Dimmisso??
Ég heyrði það á förnum vegi (eða blogginu hennar Kolfinnu (og Ingu...)) að 4. U verði í geggjuðum búningum á dimmisso. Hvað segið þið kæru A-bekkingar, þurfum við ekki að fara að spýta í lófana og koma upp með hugmyndir?? ... ja eða amk koma góðri umræðu af stað...
Hey, ég ætla að vera sniðug og gera aðra bloggfærslu fyrir dimmisso-ið og læsa henni svo að við getum rætt búningamál svona away from the public eye ![]()
Það var nefnilega annað sem ég vildi líka ræða, við þurfum víst að finna fólk í nefndir, einn í dimmissonefnd (þ.e. +Kata) og tveir í burtfaranefnd. Hverjir eru til í að taka djobbið að sér??? Ég persónulega er alveg til í að taka eitt af þessum störfum að mér ![]()
Koma svo, góðar og líflegar umræður á Hvíldardeginum! I mean, we are supposed to think about the future ![]()
upp er runninn öskudagur...
Hvað finnst ykkur??
Carmina
2008
Rann það upp fyrir fleirum að þetta er árið sem við útskrifumst, árið sem við munum komast á þrítugsaldurinn (ja, nema Kata sem þjófstartaði :P)!! Ég fékk vægt sjokk þegar tölurnar 2008 birtust á sjónvarpsskjánum...
Ég vona að þið hafið notið frísins, það styttist víst í skólann aftur... bara rúmlega tveir dagar, úff! Er það satt að við þurfum að mæta klukkan 8:15?? Ég hélt að það væri alltaf klukkan 9:00 eftir svona löng frí... En jæja, maður verður bara að sætta sig við þetta.
Hvað ætla margir að skrópa á föstudaginn??
Kveðja, Ragna sem ætlar ekki að skrópa :P
Jólin eru að koma :)
Vonandi skemmtið þið ykkur vel um jólin og áramótin og muniði nú að læra ekki of mikið. En kannski eitthvað svo að Voldemort verði nú ekki reiður við okkur aftur ;)
Vúhú
Jólakveðja,
Inga
Fyrst að við erum nú málabrautabekkur og voðalega alþjóðleg í okkur, ákvað ég að láta þetta fylgja með:
I'D Miilad Said ous Sana Saida - Arabíska
Glædelig Jul og godt nytår - Danska
Merry Christmas & Happy New Year - Enska
Gleðilig jól og eydnuríkt nýggjár - Færeyska
Hyvää Joulua 0nnellista uutta vuotta - Finnska
Joyeux Noël et Bonne Année - Franska
Fröhliche Weihnachten und ein glückliches Neues Jahr - Þýska
Kala Christougenna Ki'eftihismenos O Kenourios Chronos - Gríska
Juullimi Ukiortaassamilu Pilluarit - Grænlenska
Mele Kalikimaka & Hauoli Makahiki Hou - Hawaii-íska :/
Mo'adim Lesimkha. Shanah Tova - Hebreska
Gleðileg jól og farsælt komandi ár - Íslenska
Nollaig Shone Dhuit - Írska
Buon Natale e Felice Anno Nuovo - Ítalska
Shinnen omedeto. Kurisumasu Omedeto - Japanska
Sung Tan Chuk Ha - Kóreska
Pax hominibus bonae voluntatis - Latína
Schéi Krëschtdeeg an e Schéint Néi Joer - Lúxemborgíska
God Jul og Godt Nyttår - Norska
Wesolych Swiat i Szczesliwego Nowego Roku - Pólska
Boas Festas e um feliz Ano Novo - Portúgalska
Pozdrevlyayu s prazdnikom Rozhdestva i s Novim Godom - Rússneska
Sretan Bozic. Vesela Nova Godine - Serbneska
Feliz Navidad y Próspero Año Nuevo - Spænska
God Jul och Gott Nytt År - Sænska
Noeliniz Ve Yeni Yiliniz Kutlu Olsun - Tyrkneska
Veseloho Vam Rizdva i Shchastlyvoho Novoho Roku - Úkraínska
Nadolig LLawen a Blwyddyn Newydd Dda - Velska
jæja, fallega fólk...
Svo var Óli líka að tala eitthvað um að við ættum að baka fyrir Secret kvöldið hjá Ingu...
Jæja, látið í ykkur heyra